Sú eina sanna

Sú eina sanna

03.04.2008 17:45:18 / bylgja

Breyting

Ekkert gengur að setja inn myndir hingað....ég er komin á þann aldur að ég hef ekki þolinmæðina í þetta þannig að ég ákvað að prófa að flytja mig um set.
Mitt nýja heimili á netinu er    http://bylgjaj.spaces.live.com/?lc=1033
Þarna er ég búin að setja inn myndir og á eftir að bæta helling við.
Sjáumst þar :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 18:30:43 / bylgja

Tel mig vera enn á lífi

Langt síðan seinast :) Hef alveg haft nóg að gera en núna fer að skella á mig verkefnaalda og svo er bara einn mánuður í próf 8| Ekki alveg viss hvernig það mun ganga en ég mun gera mitt besta:$ Er með svo sem ágæta próftöflu....REK og HAR 28 apríl, AÞV 3 maí. KOS 5 maí, MAR 7 maí og svo STJ 9 maí.
Annars hef ég gert mjög lítið síðan seinast...skrapp í afmæli til Ingibjargar þann 15 og svo dreif ég mig suður þann 18. Júlía fermdist svo þann 20 og ég fór norður aftur þann 21. Lærði þann 23 og allan 24...Þá var páskafríið búið:)
Annars er Fríða orðin master...ég mun seint kalla hana meistari Fríða en þair sem vilja það meiga gera það ;)
Set inn myndir frá vegadjamminu og fleiri myndir þegar netið leyfir mér það

» 4 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 16:58:17 / bylgja

Þá er þessi vika búin

Var í verkefnaviku í skólanum...einn tími í markaðsfræði ekkert annað. Ætlaði að vera mega dugleg en varð bara dugleg. Héllt að ég kæmist yfir meira á þessum tíma...ég er greinilega ekki superman 8) Annars er það að frétta að á laugardaginn fyrir viku þá var ég svo heppin að komast á snjósleða. Komst að því að það er kannsli betra að vera meira klædd en í gallabuxum, leðurskóm og úlpu ;) Í gærkveldi þá var smá fyrrumveganestirstaffadjamm hjá Sædísi. Langt síðan við hittumast allar þessar saman. En þetta var mjög mikið stuð, mikið talað um brjóstastærð (en bara kvenfólk þarna). Tók ég nokkrar myndir og eru þær mis hæfar til byrtingar. Samt sem áður var ég ekki að taka flestar myndirnar. Besta að halda áfram að læra....þetta gerir sig ekki sjálft, er búin að reyna

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 18:28:54 / bylgja

Einn góður frá mömmu

Þegar konum verður mikið niðri fyrir og tala hátt í nöldurtóni við eiginmaenn sína, þá kemur ákveðinn eiginleiki hjá karlmönnum í ljós. Þeir hætta að heyra!!!!.....nema kannski stöku orð og þá brenglast gjarnan skilaboðin sem konurnar eru að koma á framfæri. Þegar konan segir: "Íbúðin er öll í drasli! Við verðum að taka til. Þú og ég! Draslið þitt er liggjandi á gólfinu og þú hefur engin föt til að fara í ef við setjum ekki í vél strax!" Þá heyrir karlmaðurinn: blah, blah, blah, blah, KOMDU! blah, blah, blah, blah, Þú og ég blah, blah, blah, blah, Liggjandi á gólfinu blah, blah, blah, blah, Engin föt blah, blah, blah, blah, STRAX!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 14:01:49 / bylgja

Allt að koma....

Svartsýniskastið er yfirstaðið í þetta skiptið....núna er ég full bjartsýni og ég mun rúlla þessari önn upp. 8)Kannski ég fái ekki 10 fyrir allt sem ég skila eða fyrir prófin, en ég mun ná þessu með stæl.;) Núna er ég búin að sitja í matsalnum í skólanum síðan klukkan tíu í morgun. Var smá lengi af stað en loksins þegar það gerðist þá hef ég varla stoppað síðan. Búin að skrifa rúmlega 4 blaðsíður í verkefninu í alþjóðaviðskiptum, búin að reikna tvö dæmi í rekstrarhagfræði og er ekki að fara stoppa fyrr en til að ná í þá gömlu klukkan fjögur í dag. Annars var helgin frábær í alla staði. :) Náði að fá Guðrúnu með mér út á föstudagskvöldið í smá kjaftagang á Amore. Var svo í róglegheitunum á laugardaginn í góðum félagskap.;) Á sunnudaginn skaust ég svo á Haugasand í 3 ára ammæli til Sindra. Skellti mér svo í bæinn til að taka eitt próf og skila einu verkefni. Endaði svo helgina í gær með því að vinna, skila einu verkefni og taka eitt próf....ég fékk bara einhverja geðveika orku um helgina greinilega.:d En best að fara halda áfram að vera dugleg :haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2008 09:29:53 / bylgja

?????????

Svartsýniskast dauðans í gangi hér :(....Mig langar til að hætta í skólanum því mér finnst ég ekki geta þetta :cry:...kannski er það út af því að það er mikið að gera akkúrat núna eða hvað??? Var reyndar bent á það í gærkveldi að ég gæti þetta alveg og ég hefði alveg vit á þessu...ég veit það, ég get þetta og skil þetta og þetta er gaman :$....en samt langar mig að hætta út af því að mér finnst mér ekki vera hafa nógan tíma í að gera allt sem þarf að gera 100%....:!::!: Sorry þetta væl hjá mér....einhversstaðar verð ég að fá útrás....:(

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 11:12:18 / bylgja

Þrjátíuog......

Þá er komin vika síðan ég gat farið að segja að ég sé þrjátíuog eitthvað. 8| Ekki varð mikil breyting á sjálfri mér við það en sumir telja mig vera háaldraða þótt sá sami sé mikið eldri sjálfu...;) Annars tók ég þennan merkisdag mjög rólega. Mætti í skólann, í besta tíma ever hjá uppáhaldskennaranum mínum8), strax klukkan átta. En það er eini tíminn sem ég var í...eftir það var ég bara í skólanum að læra fram til fjögur. Gerði mjög lítið eftir það...kennski er þetta merki um öldrun, að gera ekki neitt á sjálfan afmælisdaginn, en það tel ég ekki. Mjög gott að taka þessu svona rólega.
Annars fór ég í vísindaferð í Saga Capital á föstudaginn og skemmti mér þrælvel. Reyndar ekki eins vel eins og margir aðrir, því ég lét áfengið vera (er hætt að drekka í bili);)
Best að fara að halda áfram að læra. Er núna að lesa mér til varðandi viðskiptaþjónustuna hjá utanríkisráðneytinu, mjög spennandi....

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 14:14:29 / bylgja

Hvað er gert í rannsóknarhúsi?????

Ég sit í Rannsóknarhúsinu að Borgum er að reyna að læra. Hlusta á fyrirlestur hjá Helga Bergzzz síðan seinasta fimmtudag....ekkert gengur. Ég átti núna að vera í tíma í kostnaðarbókhaldi hjá Fjólu, en það vill svo heppilega til að hún er veik. Þá er það eina í stöðunni að bíða eftir næsta tíma sem er í rekstrarhagfræði hjá einmitt Helga Bergzzzz. Voða spennandi.8| 

Annars er mjög lítið að frétta hjá mér. Ákvað á seinustu stundu á laugardagskvöldið seinasta að skella mér í Sjallann með Guðbjörgu:haha:...og auðvitað skemmtum við okkur konunglega...dönsuðum allt vit frá okkur...og erum ekki alveg komin með það á hreint hvað við fórum oft á barinn og klósettið né hvort það hafi verið margir á staðnum. 8)Við vorum samt ekki það drukknar. Ég veit allavegana að ég þekkti nokkra og ég fékk símanúmer hjá einhverjum dreng sem ég á svo að dreifa til kvenna sem vilja. Ef ég og Guðbjörg leggjum saman þá vitum við eitthvað smá um hann plús það að ég á mynd. Þannig að allir áhugasamir geta haft samband við mig og fengið númerið uppgefið.;) 

Loksins er svo að koma mynd á húsið heima. Herbergið mitt er að verða nokkuð lokað og ég sé fram á að geta gengið frá í því um helgina eða fljótlega eftir hana. Þá er bara spurning hvenær allt annað kemst í samt lag aftur. Ég hef það á tilfinningunni að mamma sé komin með jafn mikið ógeð ef ekki meira eins og ég á þessu rugli. Ég get þó flúið í skólann eða eitthvert annað til að þurfa ekki að vera heima, en greyjið mamma þarf að vera heima hjá sínum manni ;) 

En nóg í bili....verð að fara halda áfram að gera eitthvað...það er meira en að segja það að ver aí sex áföngum og allt nema einn er mjög mikið af verkefnum í, og það er sá eini sem ég get ekki mætt alltaf í :$


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 14:43:57 / bylgja

Nýtt ár......

Loksins, loksins....ég er ekki dauð, ég bara hef ekki nennt að gera neitt. Núna er skólinn byrjaður aftur, og ég sé fram á mikil verkefni. Þetta er held ég verst önnin til þessa en ég geri bara gott úr þessu og brosi:haha:´þá hlýtur þetta að koma hjá mér.

Annars er ekki mikið að frétta. Eftir að prófum lauk þann 14 des, þá fór ég bara að vinna. 

Ég get nokkurnvegin sagt að það eina sem ég gerði um jólin var að vinna, borða og sofa....samt minnst af því að vinna ;) 

Er samt að sjá núna að ég er ekki að nenna að blogga....kemur betri færsla síða 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 20:55:55 / bylgja

Fyrsta einkunn hálvegis komin í hús....

Var í prófi í morgun í Þjóðhagfræði. Tók það í Web-ct (það er að segja í tölvu), fékk einkunn fyrir það í dag 5,9. Er þetta bara fyrir prófið sjálft, á eftir að fá lokaeinkun en ég er auðvitað búin að reikna það 6,10...Nokkuð sátt því um kvöldmatarleytið í gær kunni ég ekki eitt af dæmunum sem kom í morgun:$ en mér tókst að læra að reikna það og brilleraði í morgun á því...var með 25% af 30% rétt í dæmunum :haha: ég er að verða snilli í þessu 8)

Best að halda áfram að læra undir seinasta prófið...... 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 13:47:07 / bylgja

Andlaus

Þá er bara eitt próf eftir og það er á föstudagsmorgun. Ég sit núna í matsalnum í skólnaum að reyna að byrja að lær undi Tölfræðilega greiningu Markaðsrannsóknir. Mjög áhugaverfag, en ég er bara dottin út ú lærdómnum eftir prófið í morgun. Fjögur próf búin og ég tel mig hafa náð tveimur þeirra :cry: en ég vona samt að það sé ekki það slæmt8|

Best að fara kíkja hvort han Óskar á gagnasmiðjunni er ekki mættur svó ég geti prentað út og farið að læra af alvöru.


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 17:15:17 / bylgja

Of mikill sykur + of lítill svefn + mikill lestur á rugluðu efni = Bylgja fer bráðum að dansa upp á borði....

Sit heim (í skólanum) að gera það sem mér finnst skemmtilegast (lesa undir próf). Verð hérna og skemmti mér (lemja hausnum í borðið) eitthvað fram á kvöld (allavegana til miðnættis). Sem sagt einn af skemmtilegasta tíma ársins er núna....PRÓFTÍMI....er búin með tvö próf, veit ekki alveg hvernig mér gekk með það fyrra, en er allavegana með 1,9 í því seinna :haha:

Þannig að ef einhver vill tala við mig, þá endilega hafið samband...ég hef ekkert að gera (nenni ekki að lesa)


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 20:56:33 / bylgja

AAAARRRRGGGGGG

Þá er eitt he....:evil: próf búið...mérgekk ekki vel, en miðað við sögusagnir þá er engin ánægður...þannig að ég lifi í voninni að hafa náð.

Annars sit ég upp í háskóla og er að reyna að læra fyrir næsta próf sem er fjármál, og er það á dagskrá á miðvikudagin klukkan tvö8| Ég tel mig eiga að geta þetta nokkuð örugglega, en við sjáum bara til þegar einkunnir koma:$

Annars er mér kalt....vantar einhvern til að hlýja mér....;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 20:04:29 / bylgja

Próf

Fyrsta prófið er á morgun klukkan tvö......Stjórnun...kann ekkert....

Annars skrapp ég til Helgu og Hilmars í gærkveldi, og þegar ég var að fara skutla Helgu og Ingibjörgu í bæinn kemur það í ljós að það er púnnterað á bílnum:cry: þannig að ég þurfti að fara í morgun og skipta um dekk, setti aumingjann undir og þarf að fara með hitt dekkið í viðgerð á morgun. Þetta þýðir að ég get ekki verið á bílnum fyrr en dekkið er komið aftur undir, því það er auðvitað snjór og hálka hér í bæ :(

Annars nenni ég ekki að læra....sé stundum ekki tilganginn í að lesa undir próf, því það er ekki neitt sem festist í hausnum....en undur og stórmerki...það er eitthvað smá sem festist þar:S


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 14:35:42 / bylgja

Þoli ekki þegar ég skil ekki eitthvað

Var komin á fullaferð með að læra í Fjármálum....en þá strandaði ég á einu dæmi. Sama hvað ég reyndi ekkert gekk :whut: endaði á því að tala við kennarann, fékk útskýringu á blaði og hélt áfram....en ekkert gekk ennn:cry: ég er ekki alveg svona treg:$ Og fyrst að ég strandaði þá nenni ég ekki að halda áfram8|ekki gott því prófin eru að nálgast hrattttt:(

Ég ætti kannski að fara halda áfram að gera eitthvað:$ Guðbjörg fer að verða brjáluð á mér fyrst ég er bara að leika mér í tölvunni.....

Þangað til mér leiðist næst.........


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Leitarbox

Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 3 apríl